Hætta viðræðum haldi sveitarfélög fast við launaskerðingu 22. maí 2009 14:35 MYND/GVA
Fulltrúar Kennarasambands Íslands í viðræðum aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, sem nú standa yfir, lögðu fram yfirlýsingu á fundi aðila í dag. Í tilkynningu frá félaginu segir að yfirlýsingin sé lögð fram í ljósi frétta og viðtala um að Samband íslenskra sveitarfélaga beiti nú öllum ráðum til að fá stjórnvöld til að breyta grunnskólalögum með það að markmiði að skerða laun um 5 prósent. „Fulltrúar KÍ telja ekki heiðarlegt að sitja við samningaborð og leita sameiginlegra lausna meðan einn aðili þess samráðs nýtir tímann til að fá löggjafann í lið með sér í tilraunum sínum til að skerða kjör." Í yfirlýsingunni segir meðal annars að Kennarasamband Íslands muni taka afstöðu til áframhalds í sameiginlegri vinnu fyrir 29. maí og mun afstaðan fyrst og fremst taka mið af framvindu þessa máls. Yfirlýsingin er svohljóðandi: Yfirlýsing frá Kennarasambandi Íslands 22. maí 2009 Vegna áframhaldandi vinnu við sameiginlegt borð aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda vill Kennarasambands íslands koma eftirfarandi á framfæri. Í ljósi tilrauna Sambands íslenskra sveitarfélaga til að fá Alþingi til að gera breytingar á grunnskólalögum í þeim tilgangi að skerða laun um 5% er sjálfgefið að KÍ getur ekki á sama tíma setið við sameiginlegt samningaborð með það að markmiði að leita sameiginlegra lausna. Áðurnefnd breyting á lögum er inngrip í kjarasamning en ákvæði laga og kjarasamnings eru samhljóða. Áðurnefnd breyting á lögum hefði eftirfarandi í för með sér auk skerðingar á launum: Dögum sem foreldrar þurfa að greiða fyrir gæslu yngri nemenda fjölgar um 10 á ári sem þýðir auknar álögur á foreldra til viðbótar við þá kjaraskerðingu sem þegar er orðin. Árlegum kennslustundum í unglingadeildum fækkar um nálægt 75. Ef þessi skerðing á kennslu kæmi til framkvæmda stríddi það gegn niðurstöðu félagsdóms í máli 4/2009 frá 12 maí sl. Kennarasamband Íslands mun taka afstöðu til áframhalds í sameiginlegri vinnu fyrir 29. maí og mun afstaðan fyrst og fremst taka mið af framvindu þessa máls. Verði gerð breyting á lögum í þessa veru eftir að aðilar hafa náð saman við sameiginlegt borð telur KÍ sig óbundið af slíku samkomulagi.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Sjá meira