Innlent

Endurskoðun minnki hættu á misnotkun hryðjuverkalaga

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Philippe Boillat af fastaskrifstofu Evrópuráðsins ræða við fjölmiðla að loknum fundinum í gær.fréttablaðið/gva
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Philippe Boillat af fastaskrifstofu Evrópuráðsins ræða við fjölmiðla að loknum fundinum í gær.fréttablaðið/gva

Ráðherrar og staðgenglar þeirra frá hinum 47 aðildarríkjum Evrópuráðsins luku tveggja daga fundi sínum í Reykjavík í gær með því að samþykkja aðgerðaáætlun sem nær til stefnumótunar samtakanna á sviði fjölmiðlunar og internetsins.

Í pólitískri lokaályktun samþykktu ráðherrarnir, sem eru ábyrgir hver í sínu landi fyrir málefnum fjölmiðla, að Evrópuráðið skyldi vinna að endurskoðun fjölmiðlahugtaksins, einkum með tilliti til þróunar nýmiðla á borð við bloggsíður, samskiptasíður á netinu og leitarvélar.

Ráðherrarnir ályktuðu einnig að stjórnvöld í aðildarríkjunum ættu að endurskoða reglulega hryðjuverkavarnalög sem í gildi væru í hverju landi með það fyrir augum að þrengja möguleika á misbeitingu þeirra, einkum og sér í lagi með tilliti til verndar tjáningarfrelsisins og upplýsingafrelsis.

Reglulegt eftirlit væri mikilvægt með því að ákvæði og framfylgd slíkrar hryðjuverkalöggjafar væri með þeim hætti að hún bryti ekki í bága við borgararéttindastaðla Evrópuráðsins, sérstaklega ekki dómafordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu.

Rússland studdi allar ályktanir fundarins nema þessa um kvöð um endurskoðun hryðjuverkalaga.

- aa




Fleiri fréttir

Sjá meira


×