Tjaldasala með fyrra móti 22. maí 2009 03:00 Akureyri Líkur eru á að mannmargt verði á tjaldstæðum landsins í sumar. „
Þetta er allt að fara af stað núna. Það er mikið spurt um verð á tjöldum og tilheyrandi og eitthvað keypt, og við sjáum fram á góða sölu í sumar,“ segir Sigurður Guðmundsson, afgreiðslumaður í ferða- og útivistarversluninni Everest. Flest bendir til að margir kjósi að ferðast innanlands í sumar. Sigurður segir mest spurst fyrir um fjölskyldutjöld, sem rúma fimm til sex manns. „Ég hef ekki samburð milli ára en ég gæti trúað að salan væri að fara fyrr af stað nú en venjulega,“ segir Sigurður. Tómas Zahniser, afgreiðslumaður í Veiðimanninum, sem einnig selur tjöld, segir að venjulega byrji tjöld ekki að seljast af neinu viti fyrr en í júnímánuði. Þó sé nokkuð ljóst að stærstu tjöldin verði vinsæl í sumar. „Mér heyrist á viðskiptavinunum að það sé algengt að fólk leggi ekki í að kaupa sér hjólhýsi eða fellihýsi og ætli því að fjárfesta í tjaldi í staðinn.“ Arnar Barðdal, eigandi Víkurverka sem bjóða meðal annars hjólhýsi og fellihýsi til sölu, segir söluna ganga ótrúlega vel miðað við aðstæður í þjóðfélaginu. „Að sjálfsögðu finnum við mikinn mun miðað við síðustu ár. Bæði notuð og ódýr fellihýsi eru reyndar að seljast fremur vel, en á kostnað þeirra dýrari. Við höfum ekkert keypt inn síðan í fyrra og erum því að saxa á lagerinn. Með þessu áframhaldi sé ég fram á að hann gæti klárast að mestu leyti um mitt sumar,“ segir Arnar.- kg
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira