Ríkið sýknað af hlaupaárás 22. maí 2009 16:22 Maraþon. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni.
Ríkið var sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna skaðabótakröfu sem maður á sextugsaldri lagði fram. Málavextir eru þeir að maðurinn var að ganga heim til sín eftir að hafa skemmt sér í miðborg Reykjavíkur í febrúar árið 2005. Þegar hann kom fyrir horn á húsi við Hverfisgötu kom maður hlaupandi á harðaspretti á móti honum. Stefnandinn reyndi að forða sér frá honum en það tókst ekki. Hlauparinn hljóp manninn niður með þeim afleiðingum að stefnandi lær- og mjaðmargrindarbrotnaði. Hlauparinn hlúði í fyrstu að manninum. Að beiðni þolandans aðstoðaði árásamaðurinn hann að reisa sig upp en sleppti svo snögglega takinu og hljóp í burtu þegar tvö vitni sögðust hafa hringt og óskað liðsinnis lögreglu. Við það féll hann aftur til jarðar enda það illa slasaður að hann gat með engu móti staðið óstuddur. Maðurinn þurfti að leita sér aðhlynningar á spítala auk þess sem hann dvaldi á sjúkrahóteli í kjölfarið. Hann brá á það ráð að kæra manninn til lögreglu fyrir líkamsárás en hlauparinn fannst aldrei og því málið látið niður falla. Það var þá sem hann lögsótti ríkið og krafðist þrettán hundruð þúsund króna í skaðabætur á þeim forsendum að hann ætti rétt á bótum vegna þess að hann væri fórnalamb refsiverðs verknaðar. Héraðsdómur Reykjavíkur féllst ekki á þau rök. Svo virðist sem dómari hafi túlkað hlaupaárásina sem svo að um óviljaverk hafi verið að ræða. Því var ríkið sýknað af skaðabótakröfu mannsins sem varð fyrir hlauparanum.
Mest lesið Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Innlent Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést Erlent Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Innlent Þrír fluttir til Hollands og hantaveiruskipið á leið til Tenerife Erlent „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Innlent Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Deilir djúpfalsaðri mynd af sér sjálfri til að vara aðra við Erlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira