Innlent

Forgangsreinar verði fleiri

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir

Þrjátíu ný græn skref voru samþykkt í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur á þriðjudagskvöld. Þar er meðal annars gert ráð fyrir fleiri forgangsreinum fyrir strætó og að búnir verði til sælureitir í öllum hverfum.

Fjörutíu og fimm græn skref voru sett fram árið 2007 og nú er 90% þeirra annaðhvort lokið eða komin vel af stað, segir Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur.

„Þeirra á meðal var umhverfisátak við Tjörnina, sett voru niður 80 þúsund tré og bláum tunnum var komið upp fyrir þá sem vilja endurvinna meira," segir Þorbjörg. - vsp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×