Innlent

Beita makríl þrátt fyrir bann

Veginn og metinn Fræðimenn fylgjast með viðgangi ísaldarurriðans í Þingvallavatni.
Veginn og metinn Fræðimenn fylgjast með viðgangi ísaldarurriðans í Þingvallavatni.

Veiðimenn sem virða ekki reglur virðast geta stundað iðju sína óáreittir við Þingvallavatn ef marka má fréttavefinn votnogveidi.is.

Bannað var í fyrra að nota makríl sem beitu fyrir landi þjóðgarðsins. Á votnogveidi.is er því lýst hvernig markílveiðimaður einn kom að næturlagi að Þingvallavatni og rótaði upp vænum urriðum. „Nú hljóta menn að spyrja sig: Til hvers að vera með reglur? Hver er gæslan? Hver er eftirfylgnin? Geta menn bara haldið áfram að koma þarna og slora allt út með sínum makríl?“ segir á votnogveidi.is. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×