Dótturfélagið græðir milljónir úr stofunni Valur Grettisson skrifar 22. maí 2009 10:58 Gunnar Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, á góðum degi.
Útgáfufélagið Frjáls miðlun, sem er í eigu dóttur Gunnars Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs og eiginmanns hennar, er með aðsetur á heimili þeirra hjóna. Gunnar hefur verið gagnrýndur harkalega fyrir að gera samninga við Frjálsa miðlun. Dóttir hans, Brynhildur Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar, Guðjón Gísli Guðmundsson, eiga og reka félagið. Í DV hefur því verið haldið fram að bæjarfélagið hafi greitt Frjálsri miðlun allt að 51 milljón króna. Þá er því einnig haldið fram að ekki hafi verið haldið eðlilegt útboð um þau verkefni sem útgáfufélagið sá um. Meðal þeirra verkefna sem Frjáls miðlun vann fyrir bæjarfélagið var ársskýrsla en henni var dreift á öll heimili bæjarins. Þess má hinsvegar geta að verkefni undir fimm milljónum króna eru ekki endilega útboðsskyld. Síðast kom í ljós að Lánastofnun námsmanna, LÍN, hafði greitt félaginu 11 milljónir króna. Á sama tíma gegndi Gunnar stöðu stjórnarformanns sjóðsins. Nýr menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, hefur þegar boðað rannsókn á greiðslunum til félagsins. Gunnar hefur neitað að hafa hafa komið nálægt greiðslunum í fjölmiðlum.. Minnihlutinn í bæjarstjórn Kópavogs hefur óskað eftir samantekt á heildargreiðslum til Frjálsrar miðlunar. Gunnar hefur látið hafa eftir sér að hann sé hvergi bangin við niðurstöðuna. Hann segir málið persónulega árás á sig og fjölskyldu sína. Ekki náðist í Brynhildi, dóttur Gunnars, þegar reynt var að hringja í heimasímann - sem er reyndar einnig fyrirtækjasími Frjálsra miðlunar.
Mest lesið Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu Innlent Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Innlent Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Innlent „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Innlent „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Innlent Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Á sjötta tug vísað úr landi Innlent Ákærður fyrir að veiða minka Innlent Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Fleiri fréttir „Hlutirnir eru málaðir upp eins og allt sé að fara í kaldakol“ Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Telur forsætisnefnd hafa brotið á sér og leitar réttar síns Vinstrið á fleygiferð og Viðreisn í lykilhlutverki Á sjötta tug vísað úr landi Boeing 757-þotur gætu kvatt Icelandair í haust Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á friðhelgi Páls „Þetta eru bestu launin, hlýjan í hjartað“ „Við erum bara komin aftur í Icesave-tímann“ Sjálfstæðisflokkur eykur forskotið á Samfylkingu í Reykjavík Gögn íslenskra nemenda mögulega í höndum netþrjóta Mikil tíðindi í nýrri Maskínu-könnun og fjölda afbrotamanna vísað úr landi Ákærð fyrir manndráp: Á að hafa brugðið snöru um háls dótturinnar Þóra og Ríkisútvarpið sýknuð af kröfum Páls skipstjóra Gera athugasemdir við að borgarbúar kjósi í Kópavogi Gjörsamlega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu „Það má ekki eyða peningum sem Alþingi hefur ekki úthlutað“ „Ásdís, stattu með samgöngusáttmálanum!“ Breytt verklag útskýri hærri tölur í áhættumati Ákærður fyrir að veiða minka Eldur í mannlausri rútu í Laugardal Spurningunni verði breytt og svarið einfalt „Já“ eða „Nei“ Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Sjá meira