Innlent

Rangt staðið að synjun leyfis

Hart er deilt um fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn.
Hart er deilt um fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn.

Ákvörðun bæjarráðs sveitarfélagsins Ölfuss um að synja Lýsi hf. um leyfi fyrir uppsetningu óson- hreinsunartanka við fiskþurrkun fyrirtækisins í Þorlákshöfn hefur verið ógilt af úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála.

Úrskurðarnefndin segir að bæjarráðið hafi hafnað umsókn Lýsis án þess að byggingarnefnd Ölfuss hafi afgreitt málið með rökstuddum hætti. Það hafi verið andstætt skipulags- og byggingarlögum.

„Þar við bætist að með hinni kærðu ákvörðun bæjarráðs var umsókn kæranda hafnað að svo stöddu án þess að gerð væri grein fyrir því með skýrum hætti við hvað væri átt,“ segir úrskurðarnefndin.- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×