Innlent

Fjárlaganefnd fær yfirlit yfir útgjöld

Fjármálaráðherra segir tekjusamdrátt hjá ríkissjóði meðal annars stafa af því að fyrirtækjum hafi verið heimilað að fresta greiðslu ýmissa gjalda.Fréttablaðið/Valli
Fjármálaráðherra segir tekjusamdrátt hjá ríkissjóði meðal annars stafa af því að fyrirtækjum hafi verið heimilað að fresta greiðslu ýmissa gjalda.Fréttablaðið/Valli

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir tekjur ríkisins hafa verið nokkuð minni á þessu ári en ráð hafi verið fyrir gert. „Það er meiri samdráttur og heldur minni velta í samfélaginu,“ segir fjármálaráðherra.

Haft var eftir Birki Jóni Jónssyni, alþingismanni Framsóknarflokksins, á Vísi að hann óttaðist að forsendur fjárlaga væru brostnar. Kvað hann nýlega þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins verða rædda á fundi efnahags- og skattanefndar í dag.

Fjármálaráðherra segir ýmsar ráðstafanir sem ríkisstjórnin hafi gert til að koma til móts við atvinnulífið, sérstaklega varðandi frestun ýmissa gjalda, hafa hægt á tekjustreymi til ríkissjóðs. En sú frestun verði aðeins í eitt skipti.

Steingrímur segir enn fremur að í vikunni hafi hann kynnt í ríkisstjórn fyrsta yfirlit yfir útgjaldaþróunina á þessu ári. „Það er alltaf þannig að einhverjir liðir hafa farið fram úr en aðrir ekki og heildarútkoman er vel ásættanleg og vel innan áætlunar,“ segir ráðherra og boðar að umrætt yfirlit verði sent til fjárlaganefndar Alþingis ásamt undirliggjandi gögnum um einstaka fjárlagaliði.

„Fjárlaganefndin getur þá fylgst með þessu með okkur,“ segir Steingrímur og ítrekar að vel sé fylgst með ef útgjöld fari fram úr áætlun. „Við ætlum að beita þessu aðhaldi mjög ákveðið því ekki veitir af að menn nái að halda sér innan við útgjaldarammann.“- gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×