Ljóðað í ljósvakanum 31. október 2009 05:00 Friðrik Þór Friðriksson situr og dæmir í handritakeppninni. fréttablaðið/gva
Mönnum dettur sjaldnast í hug ljóð þegar kvikmyndir eru annars vegar. Samlíking listgreina er enda vafasöm. Listgreinar standa á sínu. Hitt er hverju orði sannara að tilraunamyndin er oft lík ljóði, stutt, grípur afmarkað svið umhverfis og tilfinningar með fáum gerendum. Það er því vel við hæfi að stuttmyndahátíð ungra höfunda kenni sig við ljósvakaljóð en hún verður haldin öðru sinni í næstu viku. Skilafrestur rennur út á mánudag en hátíðin er haldin í Norræna húsinu hinn 5. nóvember. Þeir sem vilja leggja nótt við dag og klára hálfkaraðar myndir eða handrit hafa því helgina. Keppt verður um bestu stuttmyndina, besta frumsamda handritið og í annað skipti á Íslandi verður keppt um bestu pitch-hugmyndina en sú keppni sló eftirminnilega í gegn þegar hún var haldin í fyrsta skipti í fyrra. Höfundar verða að vera á aldrinum 15-25 ára en umsóknarfrestur er til og með 2. nóvember. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að kynna sér keppnina og skrá sig á heimasíðu Ljósvakaljóða, www.ljosvakaljod.is. Peningaverðlaun eru í boði. Dómarar í handritakeppninni eru einn virtasti kvikmyndaleikstjóri Íslands, Friðrik Þór Friðriksson, ásamt Bergi Ebba Benediktssyni og Yrsu Sigurðardóttur rithöfundi. Hátíðin er haldin í fjórða skipti í ár og unnin í samstarfi við dvoted.net, Reykjavíkurborg, Zik Zak Filmworks og Norræna húsið. Dagskráin hefst kl. 17.30 á fimmtudag í næstu viku með umræðum með þekktum innlendum kvikmyndagerðarmönnum og svo pitch-keppni þar sem fólk getur viðrað kvikmyndahugmyndir sínar og fengið ráðleggingar fagaðila. Sjálf stuttmyndakeppnin fer svo fram kl. 20 um kvöldið. Valdar verða 6-10 stuttmyndir úr innsendum myndum til að keppa um aðalverðlaunin, 50.000 króna peningaverðlaun. Aðgangur er ókeypis og allir áhugasamir eru velkomnir.- pbb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Sjá meira