Gagnrýnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins 12. júlí 2009 12:00 Dögg Pálsdóttir, lögmaður og fyrrum varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Mynd/Pjetur
Dögg Pálsdóttir lögmaður sem bauð sig fram til Alþingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn í síðustu alþingiskosningum, gagnrýnir flokkinn fyrir að leggja til að farið verði í tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Dögg Pálsdóttir bauð sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar í vor en náði ekki brautargengi. Hún segir á bloggsíðu sinni í dag að Íslendingar þurfi að vita hvað sé í Evrópusambandspakkanum. Það fái þeir ekki að vita nema með aðildarviðræðum. Því fyrr sem fáist úr þessu skorið, því betra. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varaformaður flokksins hafa lagt fram breytingartillögu á Alþingi um að farið verði í þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sækja beri um aðild að Evrópusambandinu, áður en ákveið sé að fara í viðræðurnar. Dögg segir að tvöföld atkvæðagreiðsla, eins og forystumenn Sjálfstæðisflokksins leggi til sé fráleit, kostnaðarsöm tímaeyðsla. Enda valdi forysta Sjálfstæðisflokksins fjölmörgum stuðningsmönnum flokksins miklum vonbrigðum með því að kalla eftir henni. Dögg segir að því verði ekki trúað að óreyndu að einhverjir þingmenn og þá væntanlega Sjálfstæðisflokksins, ætli að skila auðu í þessu máli, máli sem sé meðal hinna stærstu sem komið hafi á borð Alþingis. Hjáseta sé auðvitað afstaða. Í henni felist að þingmaður styðji ekki mál en vilji þó ekki verða til að það falli. „Ég hygg þó að kjósendur telji sig eiga rétt á því að vita afdráttarlaust hvort kjörnir fulltrúar styðji aðildarviðræður eða ekki,“ segir Dögg Pálsdóttir lögmaður og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Sjá meira