Tafir á Helguvík skaða Orkuveituna 4. nóvember 2009 18:45
Orkuveita Reykjavíkur sér fram á hundruð milljóna króna kostnaðarauka vegna tafa á Helguvíkurverkefninu og rekur hluta tjónsins til aðgerða ríkisstjórnarinnar. Óvissa um Suðvesturlínur og orkuskatta veldur því að Orkuveitan getur ekki staðfest pöntun á Mitzubishi-aflvélum frá Japan og reynir nú að mæta tafakostnaði með hærra orkuverði frá Norðuráli.Ákvæði stöðugleikasáttmálans, þess efnis að ríkisstjórnin myndi kappkosta að engar hindranir yrðu í vegi álversframkvæmda í Helguvík eftir 1. nóvember, var ekki sett inn af tilviljun. Meginástæðan er tímasetningar í samningum Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur, sem áformuðu nú í nóvember að skrifa undir orkusamning vegna annars áfanga álversins, en hann kallar á framkvæmdir við Hverahlíðarvirkjun.Eftir að grænt ljós fékkst í síðustu viku frá Evrópska fjárfestingabankanum telur Orkuveitan góða von um fjármögnun og frá Norðuráli fást þau svör hjá Ágústi Hafberg að fjármögnun miði ágætlega. Hann segir Norðurál hins vegar ekki treysta sér til að undirrita orkusamninginn né aðra samninga meðan óvissa er um áform ríkisstjórnarinnar um orkuskatta og hvernig umhverfisráðherra afgreiðir Suðvesturlínur.Þetta setur Orkuveituna í vanda gagnvart samningum við Mitzibishi um kaup á aflvélum fyrir Hverahlíðarvirkjun. Guðlaugur Sverrisson stjórnarformaður segir að það að kaupa túrbínu í svona verk sé eins og að kaupa þotu. Það þurfi að panta ákveðið pláss í ferlinu og þegar farið sé að seinka því leiði það til kostnaðar fyrir framleiðandann að þurfa að hliðra til. Þennan tafakostnað, sem Guðlaugur segir að verði nokkur hundruð milljónir króna, þarf Orkuveitan að taka á sig.Hluti hans er þegar áfallinn vegna tafa sem rekja má til kreppunnar en nú sjá menn fram á meiri kostnað vegna tafa sem raktar verða til aðgerða ríkisstjórnarinnar. Til að mæta tafakostnaðinum hefur Orkuveitan nú óskað eftir hærra orkuverði frá Norðuráli.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Sjá meira