Innlent

Ísland verður sjöunda lagið á svið í úrslitunum

Christopher Neal, Óskar Páll Sveinsson Tinatin Japaridze höfundar lagsins ásamt Jóhönnu Guðrúnu.
Christopher Neal, Óskar Páll Sveinsson Tinatin Japaridze höfundar lagsins ásamt Jóhönnu Guðrúnu.
Eftir að fyrri undanúrslitakeppninni í Eurovision lauk í kvöld var farið í það að draga um númeraröð landanna á úrslitakvöldinu. Keppendur landanna svöruðu einnig nokkrum spurningum. Ísland verður sjöunda atriðið á svið á laugardaginn. Portúgal verður atriðið á undan okkur.

Á blaðamannafundi eftir keppnina talaði Jóhanna um hversu stressuð hún hefði verið þar sem hún var síðust áfram. Hún nefndi einnig að hún hefði grátið þegar ljóst var að Ísland fór áfram. Hún bætti einnig við að hún héldi að sigurvegarinn í keppninni væri á umræddum blaðamannafundi.

Aðspurð um efnahagsástandið á Íslandi sagði Jóhanna að íslendingum veitti ekki af góðum fréttum á þessum síðustu og verstu. Hún þakkaði síðan öllum sem kusu lagið.

Hér að neðan má sjá númer hvað hin löndin verða á úrslitakvöldinu:

Svíþjóð - 4

Armenía - 9

Tyrkland - 18

Ísrael - 2

Ísland 7

Rúmenía - 22

Finnland - 24

Portúgal - 6

Malta - 14

Bosnía - 12




Fleiri fréttir

Sjá meira


×