Lítið sést til Magnúsar Scheving 24. október 2009 13:00 Magnús Scheving er lítt áberandi í stiklu kvikmyndarinnar The Spy Next Door þrátt fyrir að hlutverk hans verði að teljast nokkuð stórt.fréttablaðið/GVA
Magnús Scheving leikur sem kunnugt er aðalskúrkinn í Jackie Chan-myndinni The Spy Next Door. Hlutverkið er nokkuð stórt en myndin skartar auk þeirra tveggja Billy Ray Cyrus, föður unglingastjörnunnar Miley Cyrus, og George Lopez sem áhorfendur Stöðvar 2 ættu að kannast við úr samnefndum gamanþáttum. Stikla myndarinnar var nýlega frumsýnd á netinu og er meðal annars hægt að nálgast hana á You Tube. Og þar má sjá Hong Kong-stjörnuna lemja frá sér með alls kyns tólum og tækjum. Eflaust hafa aðdáendur Sportacusar eða Íþróttaálfsins beðið með öndina í hálsinum eftir að sjá Magnús birtast í gervi hins illa PolDark en þeir hafa þurft að rýna ansi stíft í stikluna til að sjá íslensku hetjunni bregða fyrir. Því sú stund varir ekki lengur en í eitt sekúndubrot. Mestur tíminn fer í að sýna Jackie á hlaupum eða í baráttu við krakkana sem hann á að passa. Í athugasemdakerfi má síðan lesa að mörgum þykir myndin svipa ansi mikið til Vin Diesel-myndarinnar The Pacifier en þar lék vöðvabúntið einmitt hörkutól sem falið er að passa nokkra krakka. Samkvæmt imdb.com verður myndin frumsýnd hinn 15. janúar á næsta ári.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira