Innlent

Búið að slökkva eldinn - töluverðar skemmdir

Slökkviliðið náði að ráða niðurlögum eldsins skömmu eftir að þeir komu á vettvang. Mynd/Anton Brink.
Slökkviliðið náði að ráða niðurlögum eldsins skömmu eftir að þeir komu á vettvang. Mynd/Anton Brink.

Slökkviliðið er búið að ráða niðurlögum eldsins á Skólavörðustígnum en þar kviknaði í mannlausu húsi. Ekki er vitað um eldsupptök.

Samkvæmt slökkviliðinu varð mikið tjón á húsinu.

Hústökumenn tóku húsið traustataki fyrir nokkrum mánuðum síðan og eigandinn leyfði þeim að hafast við þar.

Samkvæmt varðstjóra lögreglunnar þá sáust þrjú ungmenni labba frá húsinu skömmu áður en eldurinn kviknaði. Lögreglan reynir að ná tali af þeim en þau er ekki sérstaklega grunuð um græsku.

Aðspurður hvort um íkveikju sé að ræða segir varðstjórinn að rannsóknin sé nýhafinn og allt inn í myndinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×