Ríkið þarf að eyða óvissu 5. júní 2009 05:45 Bankastjórar Svein Harald Øygard seðlabankastjóri og Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri kynntu yfirlýsingu peningastefnunefndar Seðlabankans á blaðamannafundi í gær. Fréttablaðið/Anton
Stærri skref verða ekki tekin í lækkun stýrivaxta meðan ekki liggur fyrir áætlun um tilhögun ríkisfjármála. Þetta kom fram á vaxtaákvörðunarfundi Seðlabanka Íslands í gær. Kynnt var eins prósentustigs lækkun stýrivaxta, sem nú standa í tólf prósentum. Við síðustu vaxtaákvörðun í maíbyrjun voru vextir lækkaðir um 2,5 prósentustig og boðað að lækkun yrði vegleg næst. Í millitíðinni hefur komið fram að sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) var mótfallin vaxtalækkun nú, þar sem hún gæti ógnað stöðugleika krónu. Forsvarsmenn Seðlabankans taka þó fyrir að AGS hafi ráðið nokkru um ákvörðunina, heldur þróun efnahagsmála, þótt peningastefnunefndin sé um margt sammála mati sjóðsins. Þannig hafi verið slakað verulega á peningalegu aðhaldi með verulegri lækkun vaxta eftir síðustu ákvörðun um stýrivexti. Þar með hafi verið náð árangri sem stefnt hafi verið að. Um leið snúa ákvarðanir peningastefnunefndar í vaxtamálum að því að styðja við krónuna, að því er fram kom í máli Arnórs Sighvatssonar aðstoðarseðlabankastjóra og Sveins Haralds Øygard seðlabankastjóra. Þá áréttuðu seðlabankastjórarnir að til stæði að aflétta gjaldeyrishöftum að hluta síðar á þessu ári og ákvarðanir í vaxtamálum þyrfti að miða við það. Aukinheldur sagði Arnór að með stærri skrefum í vaxtalækkunum yrði til meiri hvati til þess að fara í kring um gjaldeyrishöftin. „Við erum að reyna að byggja upp traust, en mjög lítið fer fyrir því í dag. Stærstu vandamálin því tengd er að á alþjóðlegum mörkuðum ríkir ekki traust á að ríkissjóður fái staðið við skuldbindingar sínar. En það mun hins vegar koma í ljós síðar á árinu að ríkissjóður getur það,“ segir hann, þótt ekki liggi það ljóst fyrir nú meðan ósamið er um ákveðin atriði. „Þegar liggja fyrir áætlanir í ríkisfjármálum þá dregur úr þessari óvissu og þá minnkar það vaxtabil sem við þurfum, en á þessari stundu liggur ekki fyrir hvert það vaxtabil verður.“ Í yfirferð sinni um helstu hagstærðir lýsti Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, raunar vonbrigðum með að utanríkisviðskipti hefðu ekki stutt við gengið með sama hætti og vonast hefði verið til. Þannig væri gengi krónunnar núna um tveimur prósentum veikara en eftir síðustu stýrivaxtaákvörðun og átta prósentum veikara en bankinn hefði gert ráð fyrir í síðustu spá. Ástæður óhagstæðrar þróunar utanríkisviðskipta segir hann svo skrifast á alþjóðlegu fjármálakreppuna. Þórarinn segir þó mikilvægt að hafa í huga að magn útflutnings hafi haldist í horfinu. „Efnahagskreppan birtist okkur fyrst og fremst í lækkun á afurðaverði sem gefur okkur von um að utanríkisviðskipti geti batnað um leið og markaðir ná sér á strik.“ Þórarinn segir ekki ástæðu til að hafa ýkja miklar áhyggjur af heldur hægari hjöðnun verðbólgunnar. „Þótt hún hafi verið í hærri kantinum þá breytir það ekki stóru myndinni,“ segir hann og kveður spá um að verðbólga verði komin að 2,5 prósenta markmiði Seðlabankans á fyrri hluta næsta árs. Verðbólga nú sé gengisdrifin og þá hafi makaskiptasamningar á fasteignamarkaði áhrif til hækkunar sem tæpast séu marktæk. Um leið áréttar Þórarinn að aukning verðbólgu vegna skattahækkana, sem komið gæti til á næstunni, kalli ekki á bein peningastefnuviðbrögð. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira