Beðið eftir reglugerð um greiðsluaðlögun 3. maí 2009 18:36
Greiðsluaðlögun er ekki enn orðin raunhæfur valkostur fyrir illa stödd heimili þar sem reglugerð með frumvarpinu hefur ekki verið endanlega útfærð. Frystingartímabili lána er í flestum tilfellum að ljúka þessa dagana og margir sitja uppi ráðalausir. Ljóst er að staða margra heimila er grafalvarleg, og til marks um það eru umræður manna á milli um að hætta að borga af lánum sínum. Slíkt hefur hins vegar í för með sér dráttarvexti og innheimtukostnað sem gerir byrðar fólks enn þyngri. Fjölmargir nýttu sér þann möguleika að frysta afborganir lána þegar boðið var upp á slíkt í haust, en frystingartímabilið er nú í mörgum tilfellum að renna sitt skeið og er fjöldi fólks ráðalaus.En hvaða úrræði eru þá í boði? Bankarnir og Íbúðalánasjóður bjóða upp á það sem kallað er greiðslujöfnun erlendra lána, en það gengur út á að fólk greiðir sömu afborgun og greidd var 2. maí 2008. Ef krónan veikist bætist ofan á höfuðstólinn samhliða því og lánstíminn lengist og öfugt ef krónan styrkist. Lánstíminn lengist því fyrst um sinn, enda hefur krónan veikst um tæp 50% ef horft er aftur til byrjun maí 2008. Við skulum nú skoða einfalt dæmi til að sýna hvaða áhrif þetta hefur á afborganir erlendra íbúðalána: Ef 14 milljón króna lán til 30 ára í myntkörfu var tekið 28. janúar 2008 og greitt er af því á þriggja mánaða fresti, þá hefur greiðslujöfnunarúrræðið það í för með sér að þriggja mánaða afborgun lækkar úr 417 þúsund krónum niður í 330 þúsund krónur. Nú þegar hafa 600 manns sótt um þetta úrræði hjá Íslandsbanka. Hjá Kaupþingi nýttu um 1200 manns sér frystingarúrræðið og því má gera ráð fyrir að þorri þess hóps sæki um greiðslujöfnun. Ekki hafa fengist nýjar tölur frá Íbúðalánasjóði og Landsbankanum um fjölda umsækjenda. Þess má geta að bankarnir bjóða einnig upp á úrræði fyrir verðtryggð lán en minni sókn er í þau. Það verður ekki horft fram hjá því að greiðslujöfnunarúrræðin duga ekki öllum - enda sum heimili á barmi gjaldþrots. Í lok mars samþykkti Alþingi frumvarp um greiðsluaðlögun, en tilgangur þess er að koma til móts við þau heimili sem eru verst stödd. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur reglugerð með frumvarpinu hins vegar ekki verið endanlega útfærð- og það þýðir að bankarnir geta ekki ennþá boðið upp á þetta úrræði sem raunhæfan valkost.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent „Ég er mjög kátur“ Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Sjá meira