Spyr hvort Össur fjármagni flokk Browns Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. maí 2009 15:28 Sigríður bíður eftir því að sjá hvernig Össur bregst við hegðun Browns. „
Nú verður spennandi að sjá hvaða silkihanskameðferð breski sendiherrann hér á landi fær vegna rangra og meiðandi ummæla Browns um Ísland í breska þinginu í vikunni," segir Sigríður Ásthildur Andersen, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins á vefsíðu sinni. Gordon Brown sagði í breska þinginu í síðustu viku að Bretar væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um greiðslur Íslendinga til Icesave. Þá bar á misskilningi í orðum breska forsætisráðherrans hvað varðar ábyrgð Íslendinga á bönkunum. Brown taldi að Íslendingar bæru ábyrgð á inneignum Christie spítalans í Singer & Friedlander bankanum, en bankinn laut eftirliti breska fjármálaeftirlitsins. Sigríður segist vona að það hafi engin áhrif á samskipti Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra við breska sendiherrann að Össur hafi verið félagi í Breska verkamannaflokknum til lífstíðar. „Össur lýsti því yfir árið 2007 að hann greiddi samviskusamlega félagsgjöld í breska Verkamannaflokkinn og hefði gert frá námsárunum. Ætli hann taki enn þátt í að fjármagna flokk Gordons Browns?," spyr Sigríður. Össur kallaði sendiráðsfulltrúa í breska sendiráðinu á sinn fund síðastliðinn föstudag vegna málsins. Þá hefur sendiherra Íslendinga í London rætt málin við fulltrúa breskra stjórnvalda í Downingstræti.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira