Innlent

Krefjast þess að leynd verði aflétt af Icesave málinu

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins krafðist þess í upphafi þingfundar í dag, að Icesave málið yrði þegar tekið fyrir á dagskrá Alþingis og leynd yfir málinu verði aflétt. En trúnaður ríkir um þau mál sem tekin eru fyrir í utanríkismálanefnd þar sem Sigmundur Davíð á sæti. Sigmundur sagði að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafi sagt ósatt í síðustu viku, þegar hann sagði að samningaviðræður um Icesave væru að hefjast, en nú kæmi í ljós að samningsniðurstaða lægi fyrir.

Ríkisstjórnin kom saman til aukafundar í hádeginu til að ræða samningsniðurstöðu við Breta og Hollendinga vegna Icesave reikninga Landsbankans í þessum ríkjum. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun og í framhaldi af því kynnt í þingflokkum stjórnarflokkanna og í utanríkismálanefnd Alþingis. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru lánakjörin sem Íslendingar fá öllu betri en áður hafi litið út fyrir.

Bjarni Beneditksson formaður Sjálfstæðisflokksins tók undir þessar kröfur og sagði mikilvægt að þingmenn gætu tjáð sig um þetta mál eins og ráðherrar.

Þuríður Backman varaforseti Alþingis sem var við fundarstjórn við upphaf þingfundar í dag, sagði að Icesave málið yrði að sjálfsögðu rætt á Alþingi, þótt það yrði ekki í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×