Innlent

Minnka má búðarhnupl um helming

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Ef karlmaður stendur lengi frammi fyrir snyrtivörurekka - er hann annaðhvort þjófur eða þarf aðstoð, segir Eyþór Víðisson, öryggissérfræðingur, sem segir að draga megi úr búðahnupli um helming með einföldum aðgerðum. Búðahnupl hefur aukist um 90% eftir bankahrun.

Í október 2007 og fram í apríl á síðasta ári voru 1359 þjófnaðarbrot á Íslandi, sem er einkum hnupl úr búðum. Frá bankahruni og fram í apríl á þessu ári hafði þeim snarfjölgað og voru orðin 2549. Það er 90% fjölgun þjófnaða á einu ári - en inni í þessu eru ekki innbrot. 10% af þessum þjófnaði verður á bensínstöðvum þegar menn taka bensín og keyra síðan í burtu án þess að borga. Að jafnaði hefur það gerst á hverjum einasta degi frá bankahruni. Það sem gerðist á milli ára - var kreppan, segir Eyþór. Í kreppu fækki starfsfólki, fé til öryggiskaupa er skorið niður og fræðsla til starfsfólks sömuleiðis. Þetta finni þjófar. Þá sé auk þess ódýrara fyrir erlend gengi að fljúga til landsins í ránsferðir.

Eyþór segir mjög óeðlilegt að eins árs rýrnun slagi í 9 milljarða í verslunum. Oft megi þekkja þjófana frá heiðarlegum viðsiptavinum og með því að uppfræða starfsfólk um hagnýt ráð til að þekkja þjófa úr, ásamt fleiri ráðstöfunum, megi vel draga úr búðahnupli um allt að helming.

 








Fleiri fréttir

Sjá meira


×