16 ára ökumaður endaði ofan í skurði með lögregluna á hælunum 15. maí 2009 19:25
Um klukkan tvö í dag barst lögreglu tilkynning um ofsaakstur fólksbifreiðar við Rauðavatn á leið austur. Nokkrar tilkynningar bárust síðar um bifreiðina þar sem henni væri ekið hratt og ógætilega framúr ökutækjum. Lögreglumenn sem voru við umferðareftirlit á Suðurlandsvegi í Ölfusi mættu bifreiðinni rétt austan við Hveragerði. Ökuhraði hennar mældist þá 118 km miðað við klukkustund. Þeir snéru við á eftir bifreiðinni en ökumaður hennar hélt ferð sinni áfram. Á móts við Gljúfjárholt missti ökumaður bifreiðina út af veginum hægra megin miðað við akstursstefnu og hafnaði þar á hvolfi ofan í skurði. Eldur kom upp í bifreiðinni en lögreglumennirnir slökktu hann með handslökkvitæki. Kalla þurfti út menn frá slökkviliði Hveragerðis til að koma ökumanni, sem var einn í bifreiðinni, út úr henni svo og til að vera til taks ef eldur kæmi aftur upp en þá hefði verið hætta á að hann bærist í sinu sem var allt umhverfis bifreiðina. Ökumaðurinn var fluttur á slysadeild Landspítala í Reykjavík en hann er þó ekki talinn alvarlega slasaður. Bifreiðin er ónýt og var flutt af vettvangi með kranbifreið. Ökumaðurinn var 16 ára og því ekki með ökuréttindi. Umferð austur Suðurlandsveg var beint inn á Hvammsveg á meðan unnið var á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Selfossi í kvöld.
Tengdar fréttir Fluttur á slysadeild eftir bílslys á Suðurlandsvegi Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir að bifreið sem hann ók um Suðurlandsveg endaði utanvegar og hafnaði á hvolfi í skurði rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Maðurinn var með meðvitund en ekki er vitað nánar um líðan hans, að sögn lögreglu. 15. maí 2009 15:44 Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira
Fluttur á slysadeild eftir bílslys á Suðurlandsvegi Karlmaður var fluttur á slysadeild eftir að bifreið sem hann ók um Suðurlandsveg endaði utanvegar og hafnaði á hvolfi í skurði rétt fyrir klukkan þrjú í dag. Maðurinn var með meðvitund en ekki er vitað nánar um líðan hans, að sögn lögreglu. 15. maí 2009 15:44