Kærir Brunavarnir Árborgar til samkeppniseftirlitsins Valur Grettisson skrifar 13. maí 2009 13:39 „
Jú, ég get staðfest það," svarar Frank Höybye, sem er er búinn að kæra Brunavarnir Árborgar til Samkeppniseftirlitsins. Ástæðan fyrir því að hann hefur kært þá er sú að slökkviliðið selur og viðheldur slökkvitækjum um leið og þeir sjá um eftirlit á brunavörnum fyrir sveitarfélögin. Sjálfur á Frank fyrirtækið Slökkvitæki ehf. Kæruna sendi hann til Samkeppniseftirlitsins í október á síðasta ári en engin niðurstaða hefur fengist í málið nú rúmu hálfu ári síðar. Frank er síður en sáttur við samkeppnisaðilann, Brunavarnir Árborgar. „Það er mín skoðun að það sé ekki hægt að keppa við þetta," segir Frank sem þykir það heldur ójöfn samkeppnisstaða þegar slökkviliðið stendur í slíkum rekstri í skjóli sveitarfélagana. „Þeir eru með niðurgreitt húsnæði, starfsmenn, bíl, lager og svo framvegis," segir Frank sem er bjartsýnn á að eftirlitið muni úrskurða honum í hag. Sjálfur segir Frank að hann hafi fengið óblíðar móttökur frá slökkviliðstjóranum Kristjáni Einarssyni en þeir hafa einu sinni áður talað saman að sögn Franks. „Ég fékk bara símhringingu frá honum þar sem mér var tilkynnt að ég væri ekki velkominn á þennan markað og ef ég mundi vera fyrir yrði mér ýtt útaf honum," segir Frank og bætir við: "Jafnframt tjáði hann mér að ef þetta væri ekki löglegt sem þeir væru að gera þá mundu þeir bara stofna ehf kennitölu og halda áfram," segir Frank. Hann bætir því við að það virðist vera staðan því hann hafi undir höndum undirritað skjal af slökkvistjóranum þar sem hann tilkynnir að Brunavarnir Árborgar séu að vinna að stofnun eignahaldsfélags til að geta haldið sölu og þjónustu á slökkvitækjum áfram. Síðast komst slökkviliðstjórinn í fréttirnar vegna deilna við undirmenn sína. Allt logar stafnanna á milli í slökkviliði Árborgar vegna deilna fimmtán slökkviliðsmanna sem ætla að hætta störfum hjá slökkviliðinu næstu mánaðarmót. Aðalástæðan mun vera ósætti við slökkviliðsstjórann. Aðspurður hvernig reksturinn gangi hjá Frank í ljósi samkeppnisaðilans svarar Frank: „Það gengur ágætlega. En hvað á maður að segja, ef maður er ekki velkominn þá fer maður bara annað." Frank stundar mikið af sínum viðskiptum á höfuðborgarsvæðinu og segir það fátítt að slökkvilið standi í svona rekstri samhliða almennum slökkvistörfum þar sem það eigi ekki siðferðislega samleið.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira