Innlent

Yfir 3.200 sóttu um sumarstarf

Yfir 3.200 sóttu um þau 49 störf sem voru í boði hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Yfir 3.200 sóttu um þau 49 störf sem voru í boði hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

Yfir 3.200 manns sóttu um 49 sumarstörf hjá Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í Laugardal í ár. Það er ríflega þreföldun frá því í fyrra, þegar umsóknirnar voru 1.007.

„Það er rosaleg vinna að fara í gegnum þessum umsóknir,“ segir Sigrún Thorlacius, aðstoðarforstöðumaður garðsins. Það sé hálfsorglegt að þurfa að vísa svo mörgum frá.

Sigrún segir að það einfaldi ferlið nokkuð að ákveðið hafi verið að ráða fyrst gamla sumarstarfsmenn sem hafi staðið sig vel. „Og þeir fara nú langt með að fylla stöðurnar,“ segir Sigrún.

Um er að ræða störf aðstoðardýrahirða, tækjavarða í Fjölskyldugarðinum, störf í veitinga- og miðasölu og vísinda- og fiskasöfnum auk nokkurra verkstjórastaða. Starfshlutfallið er áttatíu til níutíu prósent. Sigrún segir að langflestir umsækjendur séu á menntaskóla- og háskólaaldri, sautján til 25 ára. Elsti umsækjandinn sé rúmlega fertugur.

Þá verða tuttugu ungir umsækjendur til viðbótar ráðnir hálft sumarið fyrir aukafjárveitingar frá Reykjavíkurborg til að sporna við atvinnuleysi ungmenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×