Innlent

79 ára gamall maður játar íkveikju í Grímsnesi

Karlmaður fæddur 1930 hefur játað að vera valdur að bruna í sumarbústað við Borgarleyni í Grímsnesi í gær. Hann var handtekinn skammt frá brunastað á meðan slökkvistarf stóð yfir og gisti fangageymslur í nótt en var látinn laus eftir yfirheyrslu um hádegisbil í dag.

Eldurinn kom upp um klukkan 14:30 í gær og tók slökkvistarf rúma klukkustund.

Bústaðurinn er mikið skemmdur af eldi og vatni. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Selfossi og tæknideildar lögreglu Höfuðborgarsvæðisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Selfossi.


























Fleiri fréttir

Sjá meira


×