Innlent

Fráfarandi þingmaður umsjónarmaður Þjóðarsálarinnar

Valur Grettisson skrifar
Grétar Mar Jónsson tekur sig vel út í útvarpi.
Grétar Mar Jónsson tekur sig vel út í útvarpi.

Fráfarandi þingmaður Frjálslynda flokksins, Grétar Mar Jónsson, hefur nú söðlað um og hafi störf sem útvarpsmaður á Lýðvarpi Ástþórs Magnússonar.

Þátturinn sem Grétar mun halda úti er enginn annar en Þjóðarsálin. Sá þáttur naut gífurlegra vinsælda þegar hann var á Rás tvö fyrir allmörgum árum. Þá var annar stjórnmálamaður umsjónarmaður þáttarins eða Stefán Jón Hafstein.

Grétar var þingmaður Frjálslynda flokksins en datt út af þingi í síðustu kosningum. Flokkurinn þurrkaðist jafnframt út.

Lýðvarpið hefur bylgjulengdina fm 100.5. Það er Ástþór Magnússon sem heldur úti stöðinni. Hann sjálfur reyndi fyrir sér í síðustu kosningum með Lýðræðishreyfingunni. Þau, eins og Frjálslyndir, náðu engum manni inn.

Fyrir þá sem vilja létta af sálu sinni geta hringt í Grétar Mar í síma 4-500-500 á mili eitt og þrjú alla virka daga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×