Loðna finnst á mjög stóru svæði fyrir austan 7. janúar 2009 15:33
Vart hefur orðið við loðnu á mjög stóru svæði úti fyrir Norðausturlandi og norðanverðum Austfjörðum í loðnuleitinni sem nú stendur yfir og ljúka átti í dag. Albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa RE, segir í samtali við heimasíðu HB Granda að ákveðið hafi verið skipið verði heldur lengur við loðnuleit en ráð var fyrir gert en að öllu forfallalausu ætti því verkefni að ljúka fyrri hluta dags á morgun. ,,Við vorum beðnir um að bæta við okkur leitarleggjum og fara betur inn í svæðið á milli þeirra leggja sem við höfum þegar lagt að baki. Þá förum við einnig austar og norðar en upphaflega var ákveðið," sagði Albert er rætt var við hann nú eftir hádegið. Leitarsvæði Faxa RE er út af Norðausturlandi, Lundey NS leitaði á svæðinu úti fyrir Norðurlandi, vestan við Faxa RE, og Börkur NK hefur leitað af loðnu úti fyrir Austfjörðum. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson RE hefur verið við Suðausturland en þar hefur ekki orðið vart við loðnu á þessum árstíma svo vitað sé. ,,Þetta hefur gengið ágætlega. Við urðum strax varir við loðnu þegar við komum á hina hefðbundnu veiðislóð norðaustur af Langanesi og það er alls staðar loðnu að finna á því svæði. Lundey NS fann einhverja loðnu vestan við okkar svæði og Börkur NK hefur verið í loðnu á sínu svæði þannig að ljóst er að loðnan heldur sig á mjög stóru svæði," segir Albert en hann upplýsir að víða hafi verið fínar lóðningar og loðnan, sem veiðst hafi, sé mjög góð. ,,Þetta eru samt ekki eiginlegar veiðar. Við rétt dýfum trollinu og hífum um leið og það kemur í lóðið. Þetta eru örstutt hol og tilgangurinn er sá að afla sýna fyrir Hafrannsóknastofnunina," segir Albert en að hans sögn reiknar hann með því að framlengingin á loðnuleit Faxa RE samsvari rúmlega 100 sjómílum. Gangi allt að óskum ætti að vera hægt að ljúka verkinu á 15 til 16 tímum.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira