Reykjavík taki mið af GSM-reglunum 18. september 2009 07:30 Gísli Marteinn Baldursson
Hjá Reykjavíkurborg hefur almennt verið farið mjög varlega í uppsetningu á GSM-sendum, að sögn formanns umhverfisráðs. Þetta hefur verið gert „þrátt fyrir að allir okkar embættismenn og fræðimenn sem við höfum leitað til segi okkur að það stafi engin hætta af þeim,“ segir formaðurinn, Gísli Marteinn Baldursson. Honum kemur ekki á óvart ályktun Evrópuþingsins, sem sagt var frá í blaðinu í gær og bannar að slíkir sendar séu settir ofan á skóla. „Ég er sannfærður um að umhverfissvið hefur tekið mið af því. Það er sjálfsagt að tefla ekki á tvær hættur í þessu,“ segir hann. Greint hefur verið frá áhyggjum íbúa af GSM-sendum í blaðinu síðustu daga, en fjölskylda á Egilsstöðum flúði heimili sitt eftir að sendir var settur upp í nágrenninu. Heimilisfólkið fann fyrir óþægindum í höfði og á húð. Eins hefur grunnskólakennari sagt frá verri líðan sinni og nemenda sinna, eftir að sendi var komið fyrir uppi á skólanum. Í Grindavík berst maður nú gegn því að GSM-sendir verði settur upp nálægt heimili hans. Gísli Marteinn segist ekki geta svarað fyrir hvort uppsetning sendanna hafi alltaf verið grenndarkynnt. „En þeir sem hafa verið settir upp í minni tíð hafa verið það,“ segir hann og rifjar upp tvö dæmi: einn sendi sem hætt var við að setja upp vegna mótmæla íbúa og annan sem var settur upp eftir að allir íbúar hverfisins féllust á það. Spurður hvort sendarnir séu enn settir ofan á skóla og sjúkrastofnanir, segir Gísli Marteinn að hann viti ekki til þess, að minnsta kosti ekki í seinni tíð. „Við tökum þetta alvarlega og höfum heyrt reynslusögur frá fólki sem telur sig hafa orðið fyrir skaða af þessu og förum því mjög varlega,“ segir Gísli Marteinn. Á Íslandi eru engin lögbundin viðmið um hámarksstyrk GSM-senda, en Geislavarnir ríkisins miða við tilmæli ESB, sem gera ráð fyrir hærri styrk en til dæmis gert er í Sviss og í Kína. Í vor sagði Evrópuþingið að framkvæmdastjórn ESB ætti að setja reglur gegn GSM-sendum á skólum og heilbrigðisstofnunum. Geislavarnirnar mælast til þess að fólk passi upp á GSM-notkun barna, þar sem ekki er vitað um áhrif GSM-bylgna á heilsufar.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Innlent Fleiri fréttir Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Margt í miðborginni og annríki hjá lögreglu Hildur með pálmann í höndunum Lokatölur úr Flóahreppi: Meirihlutinn bætti við sig manni Sjá meira