Kaupendur fasteigna geta setið eftir með milljónatjón 26. febrúar 2009 09:00 Haukur Örn Birgisson segir að kaupendur fasteigna geti setið eftir án bóta, fari verktakinn í gjaldþrot.
Mögulegt er að kaupendur nýrra fasteigna sitji eftir með tjón sem nemur hundruðum þúsunda eða jafnvel milljónum króna fari byggingarfyrirtæki á hausinn. Þetta segir Haukur Örn Birgisson, stundakennari í lögfræði við viðskiptadeild HÍ og lögmaður hjá ERGO lögmönnum. Hann bendir á að meðan fasteignabólan stóð sem hæst hafi smærri byggingarverktakar verið að byggja hús og selt þau. Í mörgum tilfellum hafi þessi verktakafélög verið byggð upp af litlu eigin fé og eignir þeirra verið litlar. „Á tímabili voru fasteignir að seljast á mjög háu verði. Þá virðist vera sem menn hafi í sumum tilfellum verið að flýta sér svolítið í verkum sínum," segir Haukur. Hann segir að menn hafi þá verið að byggja fyrir lítinn kostnað og selt á háu verði. Markaðurinn virðist bara hafa verið þannig að ekki hafi verið vandað nógu vel til verka í sumum tilvikum. „Nú er í sumum tilfellum farið að gæta galla, til dæmis lekaskemmda, í húsum sem byggð voru síðasta sumar. Fólk er farið að verða vart við þessa galla og farið að beina skaðabótakröfum að verktökunum eða seljendum húsanna, sem eru einn og sami aðilinn. En nú getur sá aðili verið orðinn eignarlaus," segir Haukur. Hann segir því að þó að fólk sé með skemmd hús og réttmæta skaðabótakröfu í höndunum sem geti numið milljónum króna séu úrræðin fá ef seljandinn hefur verið ótraustur. „Þannig að kaupandinn á skaðabótakröfu sem getur numið milljónum króna. Hann á þá kröfu á seljanda sem annað hvort er eignalaus eða jafnvel orðinn gjaldþrota. Þannig að þó að fólkið eigi skýlausa skaðabótakröfu vegna fasteignagalla þá getur verið tilgangslaust að sækja kröfuna með dómi," segir Haukur Örn. Haukur Örn segir þó að í sumum tilfellum geti byggingarstjóri fasteignarinnar verið ábyrgur. Byggingarstjórar séu skyldaðir til að vera með ábyrgðartryggingu og í sumum tilfellum geti fasteignaeigendur þá átt bótakröfu sem tryggingafélag viðkomandi byggingastjóra þarf að greiða.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Innlent Fleiri fréttir Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Sjá meira