Svo sannarlega ekkert lamb að leika sér við 12. janúar 2009 03:45 Björgunarmenn með tvo hunda reyndu að ná lambinu, sem sést efst til hægri, þar sem það var í hömrum norðvestanvert í Úlfarsfelli. fréttablaðið/vilhelm „
Lambið er mjög sprækt og ljónstyggt svo að það er mjög erfitt að nálgast það,“ segir Hlynur Sigurðarson, formaður björgunarsveitarinnar Kyndils í Mosfellsbæ, sem ásamt þremur öðrum björgunarsveitarmönnum og sex bændum gerði árangurslausa tilraun til að ná lambi af syllu í Úlfarsfelli í gær. Lambið hefur hafst við í Úlfarsfelli undanfarnar vikur eftir að það varð viðskila við aðrar kindur. Hlynur segist ekki vita hver sé eigandi þess en að höfðu samráði við lögregluna hafi verið ákveðið að reyna að ná því. „Það varð uppistand vegna lambsins í haust þegar það fór hér út á götu og truflaði umferð en þegar fólk reyndi að nálgast það þá hljóp það upp í fjall,“ segir Hlynur. Björgunarmönnum tóks að reka lambið niður af syllunni í gær. Þeir björgunarmenn sem þar biðu náðu hins vegar ekki að handsama lambið og því hljóp það aftur upp í fjall og út á syllur sem Hlynur segir glerhálar. Hann segir varasamt að reyna að ná lambinu þar sem það er núna. Með því yrði bæði lambið og mannskapurinn settur í óþarfa hættu. Til stendur að reyna að ná lambinu síðar. „Lambið hefur greinilega nóg að éta þannig að það er alveg full orka í því,“ segir Hlynur. - ovd
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira