Ríkið selji kvótann á 120 krónur kílóið 11. nóvember 2009 04:00 Í stað þess að úthluta viðbótarafla á skötusel til þeirra sem eiga kvóta fyrir mun ríkið selja kílóið á 120 krónur og geta allar útgerðir fengið allt að fimm tonn hverju sinni. Fréttablaðið/GVA
Ríkið mun selja viðbótarkvóta á skötusel á 120 krónur hvert kíló og afla sér þannig 240 milljóna króna tekna næstu tvö ár ef frumvarp sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra lagði fyrir Alþingi í gær verður að lögum. „Þetta er mjög sérstakt,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. „Þarna er bara verið að fara fyrningarleiðina með eina fisktegund.“ Viðbótarkvótinn verður óframseljanlegur. Útgerðum allra skipa gefst kostur á að kaupa allt að fimm tonn fyrir hvert skip. Frumvarpið gerir ráð fyrir að ríkið eigi að verja fjörutíu prósentum af þeim 240 milljónum króna sem fáist við kvótasöluna í rannsóknarsjóð til að auka verðmæti sjávarfangs. Sextíu prósent eiga að renna til byggðaáætlunar til að stuðla að atvinnuþróun og nýsköpun í sjávarbyggðum. Friðrik J. Arngrímsson segir að ríkið hafi aldrei áður selt kvóta á nytjastofna með þeim hætti sem frumvarpið gerir ráð fyrir. „Ég held að þetta hljóti að verða endurskoðað í ljósi þeirra loforða sem ríkisstjórnin hefur gefið í tengslum við gerð stöðugleikasáttmálans. Ef þetta á að ganga fram eru það algjör svik við þau loforð sem gefin hafa verið.“ Friðrik vísar þar til yfirlýsingar forsætis- og fjármálaráðherra frá 28. október síðastliðnum um að engin breyting hafi orðið varðandi þann „sáttafarveg sem endurskoðun fiskveiðistjórnunarinnar var sett í með skipun nefndar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í sumar, þar sem forsenda nefndarstarfsins er að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði til langs tíma“. Hann segir vandséð hvernig ákvæði frumvarps Jóns Bjarnasonar samrýmist þeirri yfirlýsingu. Smábátasjómenn bregðast með öðrum hætti en LÍÚ við frumvarpi sjávarútvegsráðherra. Samtök þeirra hafa undanfarið hvatt til þess að gefinn verði út aukinn skötuselskvóti. Mun meira hafi veiðst af skötusel en áður og á áður óþekktri veiðislóð undan Vestur- og Norðurlandi þar sem hann hafi komið sem meðafli við línu- og grásleppuveiðar. Kvótaskortur hafi valdið vandræðum. Arthur Bogason, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, sagðist í samtali við Fréttablaðið fagna því að búið væri að stíga þetta skref til þess að auka kvóta á skötusel. „En það á eftir að koma í ljós í framkvæmdinni hvort þetta er rétta lausnin,“ segir Arthur. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Vaktin: Björgunarsveitir á fullu um land allt Innlent Ragnar brosir allan hringinn eftir símtal frá Góu og Omnom Innlent Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Innlent Taka ákvörðun um skólahald síðdegis Innlent Framíköll Jóns féllu í grýttan jarðveg: „Flissandi og dónalegur“ Innlent Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Innlent Gremja innan Landspítala vegna stóra páskaeggjahallærisins Innlent Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Innlent Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Innlent „Þetta er fréttamennska sem er stórhættuleg“ Innlent Fleiri fréttir Ætla ekki að reka legurými í Klíníkinni Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun „Sem betur fer er okkar maður ekki illa meiddur“ Kastaðist marga metra eftir að ekið var á hann Snör handtök skiptu sköpum á Höfðatorgi Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Árekstur í Borgarfirði 2025: Hálka ein meginorsaka banaslyss Fækka stöðugildum hjá ríkinu um eitt prósent Bein útsending: Daði Már kynnir fjármálaáætlunina Forseti Slóveníu mætir á afmælisdegi Vigdísar Líf leiðir Sjálfstæðisflokk áfram á Akranesi Stúlkan er fundin Opna nýja möguleika í að binda kolefni með aðferð Carbfix Neita að afhenda dóma lögreglumanna Varð fyrir „áfalli“ að sjá uppsagnarbréf Málþing um konur sem lifa við langvinn veikindi Telja að bílastæðum fækki eftir að þau voru færð úr uppdráttum Þakklátur að flestir fylgdu tilmælunum Geta ekki siglt Herjólfi að höfninni vegna óveðursins Barnlaus leikskóli Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þakkar Google Translate fyrir að engin börn mættu í skólann Strætó hættir akstri í dag Ráðin framkvæmdastjóri Rauða krossins Sjónvarpsfréttir Sýnar vegna óveðursins Vetrarþjónusta í gangi og fer á fullt um hádegi Sorphirða fór fram þrátt fyrir vonskuveður Þetta voru vinsælustu nöfnin á síðasta ári Innan við fimmtán prósent telja loftslagsbreytingar ekki staðreynd Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Sjá meira