Hætta á að börn í efnahagslegum erfiðleikum neyti fíkniefna Jón Hákon Halldórsson skrifar 12. maí 2009 14:32 Lögreglumaður við störf. Börn sem upplifa efnahagslega erfiðleika eiga hættu á að lenda í ofbeldi, afbrotum og fíkniefnaneyslu. Mynd/ Anton.
Efnahagslegir erfiðleikar á heimilum ungmenna eru áhættuþáttur fyrir margvísleg vandamál sem þau glíma við. Þetta segir Jón Gunnars Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. „Þeim líður verr, eru reiðari, eru meira í ofbeldi og afbrotum og fíkniefnaneyslu. Þetta er skýrt mynstur," segir Jón Gunnar. Jón Gunnar rannsakaði áhrif efnahagsaðstæðna á áhættuhegðun ungmenna ásamt Þórólfi Þórlindssyni, prófessor í félagsfræði við HÍ, og Ingu Dóru Sigfúsdóttur, prófessor við HR. Gögnum var safnað með spurningalistakönnun á ungmennum af landinu öllu árið 2006. Jón Gunnar ræddi svo niðurstöður rannsóknarinnar á fundi Félagsfræðingafélags Íslands í síðustu viku. Jón Gunnar segir að niðurstöður rannsóknarinnar bendi jafnframt til þess að efnahagslegir erfiðleikar smiti út frá sér. Þetta þýði að krakkar sem búi í hverfum þar sem efnahagslegir erfiðleikar eru algengir séu líklegri til þess að glíma við félagsleg vandamál og til að sýna andfélagslega hegðun. Jón Gunnar segir að líkleg skýring á þessu sé að börn og unglingar verði fyrir áhrifum af jafnöldrum sínum. Jón Gunnar segir að í þriðja lagi hafi komið í ljós að efnahagslegir erfiðleikar snúist ekki einungis um skort á veraldlegum gæðum heldur einnig um félagslegan samanburð. Ungmenni beri sig sem sagt saman við hvert annað. Það sé vont að búa við efnahagslega erfiðleika, en enn verra að búa við efnahagslega erfiðleika þegar þeir sem maður ber sig saman við hafa það mun betra en maður sjálfur. Jón Gunnar bendir á að gögnum í þessari rannsókn hafi verið safnað árið 2006, löngu áður en bankahrunið skall á. Hann segist hins vegar vita til þess að verið sé að stefna að gagnasöfnun til þess að hægt sé að rannsaka áhrif þeirra aðstæðna, sem samfélagið stendur frammi fyrir núna, á ungmenni.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira