ÖSE gagnrýnir ójafnt atkvæðavægi milli kjördæma 27. apríl 2009 03:00 Allt í sóma Ahrens, til hægri, ásamt félaga sínum úr eftirlitsteyminu, ræðir við starfsmenn kjörstjórnar í Ráðhúsinu. Fréttablaðið/daníel „
Við bjuggumst við óheftum og lýðræðislegum kosningum, og sjálfur hef ég ekkert séð sem ekki stenst þær vonir," segir Geert Heinrich Ahrens, yfirmaður kosningaeftirlits Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) hérlendis. Tíu fulltrúar ÖSE fylgdust með framkvæmd alþingiskosninganna um allt land á laugardag. Slíkt eftirlit er afar smátt í sniðum, að sögn Ahrens. „Okkar hlutverk var í raun að kanna hvort niðurstöður kosninganna endurspegli raunverulegan vilja þjóðarinnar, og ég get ekki séð að nokkuð hreki það," segir Ahrens. Ahrens nefnir þó ójafnt atkvæðavægi á milli kjördæma sem eitt af þeim atriðum sem þarf að leysa úr. „Þetta er eitthvað sem Íslendingar hafa unnið að í áratugi og það er stöðug umræða hér um atkvæðajafnvægið," segir hann. „Eðlilegast væri að hver kjósandi myndi vega jafnt við útreikning á þingsætum," segir Ahrens. Hann tekur þó fram að þetta sé einungis almenn athugasemd. Það sé alfarið í höndum íslenskra stjórnvalda að ákveða hvort breytingar verða gerðar á kerfinu, til dæmis hvort sameina eigi öll kjördæmin í eitt. „Það er einn mikilvægasti réttur hvers sjálfstæðs ríkis að ákveða sjálft hvers konar kosningakerfi er notað." - sh
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira