Hef aldrei kynnst öðru eins ástandi 17. október 2009 04:00 Fimm starfsmenn af fimmtán voru veikir í leikskólanum Vinagerði í gær. „
Ég hef aldrei kynnst öðru eins ástandi,“ segir Dagrún Ársælsdóttir, leikskólastjóri í leikskólanum Vinagerði í Reykjavík. Svínaflensan hefur herjað á börn og starfsmenn í leikskólanum svo um munar. Í honum eru 62 börn og í gær mættu 18 börn. Þá voru fimm starfsmenn af fimmtán veikir. „Það eru tvær flensur í gangi,“ segir Dagrún enn fremur. „Það er haustflensan og svínaflensan. Þetta er rosalega smitandi. Maður hefur ekki kynnst því á þrjátíu ára ferli að þetta gangi svona jafnt yfir skólann. Stundum hefur megnið af yngstu börnunum veikst en nú er þetta allur leikskólinn. Á elstu deildinni er 31 barn en í dag eru fjögur þeirra mætt.“ Dagrún segir svínaflensu hafa verið staðfesta bæði í hópi barna og starfsmanna. Brýnt sé að foreldrar fari ekki of snemma af stað með börnin eftir veikindin. Þá sé hætta á að þau fái lungnabólgu. „Veikindin hafa varað í um það bil viku, svo ég vona nú að börnin fari að skila sér,“ segir Dagrún. „Það er hundleiðinlegt að vera í barnlausum leikskóla.“ Ólöf Ingimundardóttir, aðstoðarskólastjóri í Fellaskóla, segir ástandið í skólanum nokkuð gott. Örfáir nemendur hafi greinst með svínaflensu en þar sé enginn faraldur enn sem komið sé. Sigurlaug Hrund Svavarsdóttir, aðstoðarskólastjóri í Hamraskóla, segir að fella hafi þurft niður kennslu í efri bekkjum skólans vegna veikinda kennara. „Við látum litlu börnin að sjálfsögðu ganga fyrir,“ segir hún. Á heimasíðu skólans segir að mikil veikindi séu meðal nemenda og starfsmanna hans um þessar mundir. Nokkuð hafi borið á því að foreldrar hafi ekki náð sambandi við skrifstofu skólans til að tilkynna forföll, vegna álags á símkerfið. Útlit sé fyrir að halda þurfi áfram að fella niður kennslu í efri bekkjunum um sinn. Í tilkynningu sem menntamálaráðuneytið sendi frá sér í gær segir að nemendur í framhaldsskólum þurfi tímabundið ekki að skila veikindavottorðum. Sóttvarnalæknir höfuðborgarsvæðisins beinir þeim tilmælum til Samtaka atvinnulífsins að vegna álags á heilsugæslustöðvar séu atvinnurekendur beðnir um að leita annarra leiða til að staðfesta veikindi. jss@frettabladid.is
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Fleiri fréttir Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Sjá meira