Teknóið er enn að þróast 8. október 2009 05:00 Reyk Veek Heimir Héðinsson og vinir hans spila teknó undir heitinu Reyk Veek. Heimi finnst tónlistarstefnan heillandi. „
Reyk Veek er samstarfsverkefni nokkurra tónlistarmanna sem allir spila og semja teknótónlist. Við þekktumst lítið áður en samstarfið hófst en áttum það sameiginlegt að vilja spila gott teknó,“ segir plötusnúðurinn Heimir Héðinsson um tónlistarverkefnið Reyk Veek. Hann telur að samstarf sem þetta geri tónlistarmönnum kleift að koma ýmsu í framkvæmd sem erfiðara væri að gera einn síns liðs, líkt og útgáfu hljómdiska. „Þetta gerir líka sköpunarferlið skemmtilegra og í leiðinni kynnist maður nýju fólki og nýjum hugmyndum.“ Heimir hefur unnið sem plötusnúður frá árinu 2005 og hefur auk þess verið að vinna að eigin tónlist ásamt Raffaele Manna sem þeir hyggjast gefa út bráðlega undir merkjum Reyk Veek. „Mér finnst tónlist vera eitt það persónulegasta sem maður getur látið frá sér og þess vegna höfum við ekki verið að flýta okkur við að gefa efnið okkar út. Við spilum undir nafninu Karíus & Baktus og komumst nýlega á samning hjá umboðsskrifstofu sem sér um að bóka okkur erlendis, nú er bara að bíða og sjá hvernig þetta þróast.“ Tvö danskvöld hafa verið haldin eftir að Reyk Veek var komið á laggirnar, þriðja kvöldið fer fram á Jacobsen hinn 17. október. Heimir segir kvöldin hafa verið vel sótt og leggja listamennirnir mikið kapp á að leika lifandi tónlist í bland við skífuþeytingar. „Það sem er heillandi við raftónlist er að þessi tónlistarstefna er enn að þróast og því eru engin takmörk fyrir því sem hægt er að gera,“ segir Heimir að lokum. - sm
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira