Mælir með því að foreldrar sæki börnin í skólann Jón Hákon Halldórsson skrifar 9. október 2009 10:45 Sigurður Þ. Ragnarsson segir að veðrið nái hámarki um hádegið.
Veðurhæðin er við það að ná hámarki og það verður býsna hvasst á sunnan- og vestanverðu landinu fram til þrjú eða fjögur, segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Hann mælir með því að foreldrar sæki börn sín í skólann í dag, einkum ef um er að ræða ung börn. Sigurður segir að veðurhamurinn sé í hámarki á Suðurlandi þessa stundina og það verði stöðugt óveður á Suðurlandi frameftir degi. Hámarki verði síðan náð í Reykjavík um hádegið og það gæti bætt í fyrir þann tíma. Mjög hvasst verði í Reykjavík fram til þrjú eða fjögur en þá ætti vindurinn að geta byrjað að ganga niður. Hins vegar fari ekki að hvessa að ráði á Snæfellsnesi og á Vestfjörðum fyrr en síðdegis og því megi búast við óveðri þar í kvöld. „Góðu tíðindin eru þau að þó að það verði ekki logn á morgun þá er þetta allt á réttri leið," segir Sigurður. Hann býst við að það verði hvasst í fyrramálið en enginn stormur. Sigurður tekur fram að almennt séð sé lítið ferðaveður á sunnan- og vestanverðu landinu.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira