Innlent

Spyr Jóhönnu um krónubréf

Mynd/GVA

Sigmundur Ernir Rúnars­son, Samfylkingu, hefur lagt fram fyrirspurn til Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, þar sem farið er fram á nána útlistun á útgefnum krónubréfum.

Sigmundur óskar eftir upplýsingum um heildarnafnvirði útgefinna skuldabréfa í íslenskum krónum, frá upphafi til 15. maí þess árs, hverjir fimmtán stærstu útgefendur krónubréfa eru, hversu há upphæð gjaldfellur mánaðarlega héðan í frá og hvort vitað sé til þess að íslensk fyrirtæki eigi eignarhlut í bréfunum í gegnum íslensk eða erlend eignar­haldsfélög. - ss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×