Innlent

Dómsmálaráðuneytið rýmt

Mótmælendur streittust á móti þegar dómsmálaráðuneytið var rýmt klukkan fjögur í dag. Mótmælendur höfðu safnast saman í anddyri ráðuneytisins til þess að vekja athygli á málstað hælisleitandans Mansris Hichem, sem verið hefur í hungurverkfalli í rúmlega tuttugu daga.

Ekki kom til mikilla átaka á milli lögreglu og mótmælenda þótt þeir hafi veitt nokkuð viðnám þegar þeim var skipað að yfirgefa anddyrið þegar loka átti ráðuneytinu og enginn var handtekinn.






Tengdar fréttir

Mótmælt í dómsmálaráðuneytinu

Um þrjátíu manns hafa tekið sér stöðu í anddyri dómsmálaráðuneytisins í Skuggasundi en fólkið mótmælir viðbrögðum stjórnvalda í málum Mansris Hichem, hælisleitandans sem hefur verið í mótmælasvelti í rúmlega tuttugu daga. Fólkið hrópar slagorð til stuðnings Hichem og fylgist lögregla með úr fjarlægð. Að sögn lögreglu hafa ekki verið gefin nein fyrirmæli um að fjarlægja fólkið en ráðuneytið lokar klukkan fjögur og þá kemur í ljós hvort fólkið yfirgefur húsið eða ekki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×