Fáir nýta sér lán til viðhaldsverkefna 3. júní 2009 03:15 Húsum haldið við Sjaldan eða aldrei hefur verið eins ódýrt að ráðast í viðhald á íbúðarhúsum og sumarbústöðum. Fréttablaðið/Arnþór
Viðhaldsvinna hefur tekið kipp eftir að stjórnvöld réðust í átak í febrúar til að auðvelda viðhald á húsnæði og skapa þannig störf fyrir iðnaðarmenn. Þetta er mat starfsmanna Samtaka iðnaðarins. Lítið er hins vegar um að menn nýti sér lán til verkanna sem þeim standa til boða frá Íbúðalánasjóði. „Menn finna fyrir að vinna við viðhald hefur tekið kipp,“ segir Árni Jóhannsson, forstöðumaður hjá Samtökum iðnaðarins. „Þetta hefur hins vegar ábyggilega ekki farið eins bratt af stað og menn vonuðust til,“ segir hann. Vegna þess að aðgerðirnar eru tímabundnar hafi menn búist við skjótari viðbrögðum. Árni segir átakið enn fremur mikilvægt til að sporna við svartri atvinnustarfsemi, enda sjái fáir ástæðu til þess lengur að gefa ekki vinnu sem þessa upp til skatts. Í aðgerðunum fólst bæði að heimildir Íbúðalánasjóðs til að veita lán til viðhaldsverkefna voru rýmkaðar sem og að endurgreiðsla virðisaukaskatts af viðhaldsverkefnum var aukin úr sextíu prósentum í 100 prósent. Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir aðgerðirnar ekki hafa aukið lánveitingar sjóðsins. „Nei, sannast sagna hafa verið mjög lítil viðbrögð við þessu. Það hefur nær ekkert reynt á þetta enn sem komið er,“ segir hann. „Auðvitað er sumarið að fara af stað og fólk að átta sig á því að það sé hægt að fá iðnaðarmenn, sem var nú ekki auðvelt til skamms tíma. Það er kannski von til þess að menn taki sig á í þessu sambandi á næstu vikum og mánuðum,“ segir hann. „Mín tilfinning er sú að þetta mætti ganga betur,“ segir Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði og formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Átakið sé þó jákvætt, feli í sér tækifæri og almennt ríki ánægja það meðal sveitarstjórnarmanna. „Ég er alveg viss um að þetta mun skila sér hér og þar,“ segir hann, og nefnir sem dæmi að Ísafjarðarbær hafi nýlega ráðist í tuttugu milljóna króna viðhaldsverkefni sem kostar fimm ársverk. stigur@frettabladid.is Árni Jóhannsson Guðmundur Bjarnason Halldór Halldórsson
Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira