Ný starfsstöð verður opnuð í Sóltúni 11. maí 2009 03:30 Ríkisstjórnin tvöfaldar Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna. Fólk getur gengið beint inn af götunni og fengið ráðgjöf augliti til auglitis. Fréttablaðið/stefán
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að stórefla Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna í samstarfi við bankana, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Íbúðalánasjóð. Aðsókn eftir ráðgjöf hefur þrefaldast frá því í apríl. Elstu umsóknirnar eru frá því í byrjun apríl en vonir standa til að Ráðgjafarstofan nái að vinna á biðlistanum á fjórum vikum. Starfsemi Ráðgjafarstofunnar verður tvöfölduð og ný starfsstöð opnuð við Sóltún 26 í Reykjavík í lok vikunnar. Stefnt er að því að fólk geti gengið þar inn af götunni og fengið ráðgjöf strax. Bankarnir leggja til húsnæði, skrifstofubúnað og tölvur. Rafræn eyðublöð verða tekin í gagnið. Miðað er við að átta til tíu starfsmenn starfi á starfsstöðinni í Sóltúni. Fjórum stöðugildum verður einnig bætt við í höfuðstöðvum Ráðgjafarstofunnar við Hverfisgötu. Borgin og bankarnir leggja til einn til þrjá starfsmenn tímabundið auk þess sem ráðnir verða starfsmenn af atvinnuleysisskrá. Ásta Sigrún Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofunnar, segir að fjármálaráðgjöf sé flókin, byrja þurfi á því að þjálfa starfsmenn. Þá verður farið í átak til að kynna þau úrræði sem stjórnvöld hafa komið á fót fyrir þá sem eru í greiðsluerfiðleikum. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að mikilvægt sé að fólk notfæri sér þau úrræði sem séu í boði eftir því sem þörf sé á. „Við hvetjum fólk eindregið til að afla sér upplýsinga um hvað er í boði og leita svo ráðgjafar,“ segir hann. - ghs
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira