Innlent

Margir smáskjálftar við Grindavík

Margir smáskjálftar hafa verið í nótt norðaustan við Grindavík þar sem jarðskjálfti, sem mældist 4,9 stig á Richter, varð um hálftíuleytið í gærkvöld. Flestir hafa skjálftarnir verið litlir, en þrír þeirra voru yfir 3 á Richter. Þar af mældist einn upp á 3,3 á Richter laust eftir klukkan tvö í nótt. Ekki er vitað til þess að neinar skemmdir hafi orðið á skjálftunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×