Innlent

Stúlkan komin úr öndunarvél

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fimmtán ára stúlka, sem varð fyrir bíl á Breiðholtsbraut nærri Ögurhvarfi síðdegis í fyrradag, er enn á gjörgæsludeild Landspítalans en komin úr öndunarvél. Að sögn læknis á gjörgæsludeild er hún á batavegi. Stúlkan var á hjóli þegar slysið varð. Tildrög slyssins eru enn óljós en lögregla og rannsóknarnefnd umferðarslysa hafa málið til rannsóknar. Þá er níu ára gömlum dreng, sem varð fyrir bíl í Steinási í Garðbæ á uppstigningardag, enn haldið sofandi í öndunarvél.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×