Gjöldin höfðu ekki fylgt verðlagsþróun Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. maí 2009 17:48 Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar, segir að engir þættir í ríkisrekstrinum verði ósnertir. Mynd/ Anton Brink.
Þessi gjöld höfðu ekki fylgt verðlagsþróun og þess vegna var horft til þeirra, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis. Alþingi samþykkti frumvarp um helgina sem kveður á um hækkun olíu- og bensíngjalds, hækkun bifreiðagjalda og hækkun áfengisgjalds. Gagnrýnt hefur verið að hækkun slíkra gjalda muni hækka verðbólgu og þar með hækka vísitölutengd lán, svo sem íbúðarlán. Breytingar á tekjuskatti venjulega gerðar um áramót Helgi segir að verið sé að fara yfir öll ríkisfjármálin, rekstur, millifærslur, gjöld og skatta til þess að komast út úr þeim 170 milljarða halla sem er á ríkissjóði á yfirstandandi ári. Hann bendir á að upphæðin nemi hátt í tveimur milljónum á hverja fjölskyldu í landinu. Núna þurfi strax að taka á 20 milljarða viðbótarhalla sem samsvari um 200 þúsund krónum á hvert heimili í landinu. „Hækkunin á þessum gjöldum er hluti af því að loka þessu gati. Það skilar okkur 2,7 milljörðum upp í það en síðan þarf að ráðast í enn frekari aðgerðir," segir Helgi. Hann segir að óhjákvæmilegt verði að fara inn á öll svið ríkisrekstursins. Breytingar á tekjuskatti séu hins vegar alla jafna gerðar um áramót og því nærtækara að fara í þetta sem fyrsta skref. Verið að leiðrétta misræmi milli dísel og bensíns Helgi segir að með því að gera breytingar á bensín- og olíugjöldum sé hægt að leiðrétta ákveðið misræmi sem hafi verið komið upp milli bensíns og dísels. „Því að þegar að menn lögðu af stað með olíugjaldið 2005 þá var því lofað að dísellinn yrði hagstæðari og það hefur, eins og menn vita, ekki gengið eftir. Og það er verið að leiðrétta," segir Helgi. Hann viðurkennir að hliðaráhrifin af hækkun gjaldanna séu óæskileg. „Við erum með þetta verðtryggingarkerfi af því að við erum með ónýtan gjaldmiðil og þess vegna hækkar vísitalan um hálft prósent. En þessi áhrif eru ekki einhlít, vegna þess að ef ekki er gripið til ráðstafana af þessu tagi þá veikir það auðvitað bæði stöðu ríkisins og efnahagslífið almennt," segir Helgi. Það myndi, með óbeinum hætti, hafa áhrif á verðlagsþróun, á gengi krónunnar, á vexti og svo framvegis. Helgi leggur áherslu á að það sé ill nauðsyn að hækka gjöld til þess að auka ekki þann vanda sem Íslendingar standa frammi fyrir. „Þess vegna legg ég komin í sumar heildaráætlun um það hvernig við vinnum okkur út úr þessum verkefnum í ríkisfjármálum," segir Helgi.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Sjá meira