Lækkun vaxta fellir krónuna enn frekar 30. maí 2009 04:45 Reiknað er með að fyrstu endurskoðun ljúki í seinni hluta júnímánaðar og fari fyrir stjórn AGS um miðjan júlí. Fréttablaðið/STefán
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur ekki svigrúm fyrir Seðlabankann að lækka vexti. Fundur peningastefnunefndar verður í næstu viku. Þetta kom fram í máli Marks Flanagan, yfirmanns sendinefndar AGS, sem yfirgaf landið í gær. „Ég vil leggja áherslu á að þetta er ákvörðun Seðlabankans,“ sagði Flanagan, en ef litið væri til þess að gengi krónunnar væri nálægt sögulegu lágmarki væri hætta á að krónan myndi lækka enn meira við vaxtalækkun, sem hefði áhrif á verðbólgu og erlend lán. Franek Rozwadowski, fastafulltrúi sjóðsins hér á landi, sagði líklegt að það hefði einhver, jafnvel veruleg, jákvæð áhrif á stöðu efnahagsmála hér á landi að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Hafa þyrfti þó í huga að það gæti tekið nokkur ár. Ávinningurinn væri því ekki í hendi. Fram kom í máli Rozwadowskis og Flanagans að ef Ísland sækti um aðild að ESB þyrfti að aðlaga áætlun AGS hér á landi, en þeir vildu ekki útskýra nánar hvað í því fælist. Flanagan sagði ekki komnar upp aðstæður til að losa um gjaldeyrishöftin, svo sem virka bankastarfsemi og drjúgan gjaldeyrisvarasjóð. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og íslensk stjórnvöld sæju þó fram á að hægt yrði að byrja að losa um gjaldeyrishöftin síðar á þessu ári. Spurður hvort það hefði áhrif á efnahagsmálin að norrænu lánin, sem gert hefði verið ráð fyrir, væru ekki í höfn svaraði Flanagan því til að vissulega hefði verið gert ráð fyrir að norrænu lánin kæmu fyrr. „Það hefur ýmis áhrif á efnahagsmálin, til dæmis seinkar það sannarlega öllum áætlunum um að losa um gjaldeyrishöftin,“ sagði Flanagan. Þessa seinkun, auk þess sem seinkun hefur orðið á uppbyggingu fjármálakerfisins og áætlunargerðar til að skera niður fjárlagahallann, segir Flanagan helst koma til vegna kosninganna. Mikið starf hafi hins vegar verið unnið á bak við tjöldin sem kæmi til framkvæmda á næstu vikum. Þá myndi áætlun Íslands og AGS væntanlega komast aftur á áætlun. „Það hefði hjálpað til ef áætlunin um að minnka fjárlagahallann hefði orðið ljós fyrr,“ sagði Flanagan. Meðal annars hefði áhættuálag á Ísland hækkað mikið við efnahagshrunið og myndi ekki lækka fyrr en markaðir hefðu meiri vissu um áætlun Íslands að þessu leyti. Gert er ráð fyrir að fyrsta endurskoðun á áætluninni, sem átti að fara fram í febrúar, fari fyrir stjórn AGS um miðjan júlí. svanborg@frettabladid.is
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Fleiri fréttir MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Sjá meira