Innlent

Annar jarðskjálfti yfir 4 á Richter

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Annar jarðskjálfti, yfir fjögur á Richter,  varð um 25 mínútur í tvö í dag.
Annar jarðskjálfti, yfir fjögur á Richter, varð um 25 mínútur í tvö í dag.

Annar jarðskjálfti varð í nágrenni við Grindavík, með upptök í Fagradalsfjalli sem er um 5 kílómetrum austar en skjálftinn í gærkvöldi.

Skjálftinn varð um klukkan 13:35 og urðu margir varir við hann á höfuðborgarsvæðinu. Fyrstu tölur benda til þess að hann hafi verið um 4,5 á Richter. Samtímis skjálftanum kom annar skjálfti nærri Krýsuvík sem var um 3,1 á Richter og er talið að hann hafi átt upptök sín nærri Krýsuvík. Veðurstofan gerir ráð fyrir því að fleiri smærri skjálftar muni fylgja í framhaldi.

Gunnar B. Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu, segir að ekki sé útilokað að fleiri jarðskjálftar að svipaðri stærð verði á svæðinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×