Innlent

Skurðlækningasvið Landspítala opnar nýja dagdeild

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Hrafnhildur Baldursdóttir verður hjúkrunardeildarstjóri á nýju deildinni.
Hrafnhildur Baldursdóttir verður hjúkrunardeildarstjóri á nýju deildinni.
Ný dagdeild skurðlækningasviðs á Landspítala Hringbraut verður opnuð á 13D næstkomandi miðvikudag. Það er liður í umfangsmiklum breytingum á skipulagi skurðlækningasviðsins sem hefur að megin tilgangi að efla dagdeildarstarfsemi. Þannig er stefnt að því að auka skilvirkni í starfsemi sviðsins í heild og gera hana hagkvæmari.

Í tilkynningu frá Landspítalanum kemur fram að það sé stefna spítalans að auka dag- og göngudeildarþjónustu og þetta sé skref í átt að því markmiði sem sé mjög í takt við þróun í starfsemi sjúkrahúsa erlendis.

„Þvagfæraskurðdeild Landspítala hefur verið í marga áratugi á 13D en í núverandi mynd síðan árið 2001 þegar sambærileg deild á Landspítala Fossvogi sameinaðist henni. Núna verður starfsemi deildarinnar skipt þannig að legudeildarhlutinn sameinast almennri skurðdeild á 13G þar sem verða bæði almennar skurðlækningar og þvagfæraskurðlækningar. Legurýmum fækkar við þessa breytingu um 18 en því er mætt með nýju dagdeildinni á 13D sem er ætlað að þjóna fyrst og fremst sérgreinunum almennum skurðlækningum, augnlækningum og þvagfæraskurðlækningum," segir í tilkynningu frá Landspítala.

Hrafnhildur Baldursdóttir verður hjúkrunardeildarstjóri á nýju deildinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×