Innlent

Gunnar áfram í leyfi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gunnar Björnsson verður í leyfi fram á sumar.
Gunnar Björnsson verður í leyfi fram á sumar.
Biskup Íslands hefur ákveðið að framlengja leyfi sr. Gunnars Björnssonar frá störfum sem sóknarprestur Selfossprestakalls til 1. ágúst næstkomandi, eða á meðan mál hans er til meðferðar hjá Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar. Gunnar Björnsson fór í leyfi frá störfum þegar að hann varð ákærður fyrir kynferðisbrot gegn sóknarbörnum sínum. Hann var sýknaður af ákærunni en hann nýtur ekki fulls trausts á meðal sóknarbarna til áframhaldandi starfa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×