Innlent

Virkjunin í Svartsengi sló út

Orkuverið í Svartsengi sló út. Mynd/ Vilhelm.
Orkuverið í Svartsengi sló út. Mynd/ Vilhelm.

Orkuverið í Svartsengi sló út að mestu í skjálftanum í gærkvöldi. Tveir gufuhverflar, sem framleiða samtals 60 megavött, slógu út, og var þá aðeins eftir fimmtán megavatta framleiðsla.

Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku, segir þetta eðlilegt en túrbínurnar eru með sjálfvirka sjálftanema. Á aðra klukkustund tók að ræsa þær að nýju en Albert segir að þetta hafi ekki komið að sök þar sem aukaafl sé til í landskerfinu.

Albert segist hafa skoðað virkjanirnar bæði í Svartsengi og á Reykjanesi í gærkvöldi en engar skemmdir hafi komið í ljós og þrýstingur á borholum hafi verið óbreyttur. Þá hafi hann ekki orðið var við breytingar á hverum né séð merki um grjóthrun úr fjöllum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×