Enginn veit hver á að borga 17. október 2009 03:30 Daniel Gros er búsettur í Belgíu og þarf að ferðast um langan veg á bankaráðsfundi.
Alþingi kaus hagfræðinginn Daniel Gros í bankaráð Seðlabankans á fimmtudag, en þingflokkur Framsóknarflokksins tilnefndi hann. Daniel er búsettur í Brussel og því ljóst að hann þarf að ferðast um langan veg á bankaráðsfundi. Þá er líklegt að þýða þurfi öll gögn fyrir hann. Fréttablaðið spurðist fyrir um hver greiddi kostnað við ferðir, uppihald og þýðingar en fátt var um svör. Í Seðlabankanum fengust þær upplýsingar að þar vissu menn ekkert um málið utan það að Alþingi hefði kosið Gros í ráðið. Engin hefð væri fyrir því að bankaráðsmenn byggju erlendis og hvað kostnað varðaði væri réttast að ræða við Alþingi sem kaus Gros. Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir hins vegar að afskiptum Alþingis ljúki þegar bankaráðsmaður hefur verið kosinn. „Það er eitt sem við gerum, að kjósa fólk í nefndir og ráð. Þar með er því lokið. Það er Seðlabankans að ráða fram úr kostnaðinum.“ Helgi segist gera ráð fyrir að nokkur kostnaður sé við ferðalög, uppihald og þýðingu. Einar Skúlason, framkvæmdastjóri þingflokks Framsóknarflokksins, segir tilskipun Gros tilraun til að opna stjórnsýsluna. Kannað hefði verið hvort þetta væri ekki löglegt, en kostnaðurinn væri óljós. „Ég vona að kostnaðurinn lendi ekki á okkur.“- kóp
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira