Búast má við stærri skjálfta nær Reykjavík 30. maí 2009 18:39
Vísindamenn telja að búast megi við fleiri jarðskjálftum, allt upp í 5,5 stig, og nær Reykjavíkursvæðinu, eftir að öflug skjálftahrina hófst norðaustan Grindavíkur í gærkvöldi. Tveir skjálftar, fjögur stig og stærri, hafa komið eftir hádegi í dag en stærsti skjálftinn í gærkvöldi, upp á 4,7, varð til þess að matargestir í veitingasal Bláa lónsins flúðu skelfdir út úr húsi og orkuverið í Svartsengi sló út.Jarðskjálftahrinan hófst síðdegis í gær á sex kílómetra dýpi undir eldbrunnum Reykjanesfjallgarði á skilum jarðskorpufleka Norður-Ameríku og Evró-Asíu. Klukkan 21.33 í gærkvöldi kom stærsti skjálftinn til þessa, 4,7 stig, og fannst hann allt austur á Hvolsvöll og vestur í Búðardal. Klukkan tvö í nótt varð skjálfti upp á 3,9 stig, þriðji stórskjálftinn, upp á 4,3, varð klukkan 13.35 í dag, og klukkan 17.05 síðdegis varð skjálfti sem mældist fjögur stig. Ætla má að tveir þriðju hlutar landsmanna hafi fundið fyrir stærstu skjálftunum en hrinan hófst um fimm kílómetra austan Svartsengis en hefur síðan verið að færast austar. Alls hafa mælst um og yfir þúsund skjálftar þarna á rúmum sólarhring.Gunnar Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir engin merki um eldvirkni. Skjálftarnir séu venjulegir brotaskjálftar.En þetta var ekkert venjulegt fyrir matargestina í veitingasal Bláalónsins í gærkvöldi. Erlendir gestir stukku upp frá borðum. Fólk fór í loftköstum út og segist þjónn á staðnum aldrei hafa séð fólk standa jafn hratt upp frá borðum. Utandyra sáu gestirnir grjót hrynja úr hraunveggjum niður á gangstéttina og sjálft Bláa lónið skvetti úr sér. Alda skvettist upp á gluggana.Og ferðamennirnir sem sátu á snæðingi í salnum í dag fundu svo sannarlega fyrir skjálftanum sem varð um hálftvöleytið. Belgísk kona sagði hjartað hafa tekið kipp og viðurkenndi að hafa orðið hrædd. Þetta væri í fyrsta sinn sem hún upplifði jarðskjálfta.En sennilega voru það starfsmenn orkuversins í Svartsengi sem næstir voru upptökum stóra skjálftans í gærkvöldi. Þar lék allt á reiðiskjálfi. Tvær aflvélar slógu út, sem framleiddu 60 af 75 megavöttum orkuversins, og tók um þrjá tíma að ræsa þær á ný.Þá er talið að skjálftarnir hafi valdið því rafstrengur til Grindavíkur fór úr sambandi og var bærinn án rafmagns í fimm stundir í morgun. Ekki er vitað til þess að neinar breytingar hafi orðið á borholum virkjunarinnar.Vísindamenn útiloka ekki fleiri stóra skjálfta og þá nær Reykjavíkursvæðinu. Gunnar Guðmundsson jarðeðlisfræðingur segir ekki hægt að útloka skjálfta á bilinu 4,5 til 5,5 og þá á svæðinu milli Kleifarvatns og Fagradalsfjalls.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Fleiri fréttir Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjá meira