Atvinnuleysi jókst um 45 prósent á milli mánaða 13. janúar 2009 12:01
Skráð atvinnuleysi var tæp fimm prósent í desember og jókst það um 45 prósent að meðaltali frá mánuðinum á undan. Búist er við að atvinnuleysi aukist verulega nú í janúar. Þessar tölur koma fram í nýju yfirliti um stöðuna á vinnumarkaði, sem Vinnumálastofnun sendi frá sér nú rétt fyrir hádegi. Þar kemur fram að skráð atvinnuleysi í desember 2008 var 4,8 prósent, sem þýðir að tæplega átta þúsund manns voru að meðaltali skráðir án atvinnu. Atvinnuleysið jókst um 45 prósent að meðaltali frá því í nóvember, en á bak við þá hlutfallstölu eru tæplega 2.500 manns. Atvinnuleysi hefur ekki verið jafn mikið frá því í janúar árið 1997 og má nefna til samanburðar að á sama tíma árið 2007 var atvinnuleysi 0,8 prósent. Atvinnuleysi er nú mest á Suðurnesjum - mælist 9,7 prósent - en er minnst á Vestfjörðum - 1 prósent. Atvinnuleysi hefur aukist um 46 prósent á höfuðborgarsvæðinu og um 44 prósent á landsbyggðinni. Atvinnuleysi eykst mun meira meðal karla en kvenna. Ástæða þess er meðal annars meiri samdráttur í greinum sem karlar starfa í. Þá hefur atvinnuleysi ungs fólks aukist meira en þeirra sem eldri eru. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir áframhaldandi samdrætti í mörgum atvinnugreinum einkum verslun, mannvirkjagerð og þjónustugreinum á næstu mánuðum. Auk þess munu mörg minni fyrirtæki eiga við mikinn fjárhagsvanda að stríða, meðal annars vegna mikils fjármagnskostnaðar. Vinnumálastofnun segir erfitt að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt er talið að nú janúar muni það aukast verulega og verða á bilinu 6,4 til 6,9 prósent.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Erlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira